Fotbolti.net
22.06.26 - 00:09
Brynjar Ingi Erluson

HM: Grænhöfðaeyjar halda áfram að heilla heiminn - Úrúgvæ í miklum vandræðum

Grænhöfðaeyjar náðu í önnur frábær úrslit

Grænhöfðaeyjar náðu í önnur frábær úrslit

Canon

Mynd: EPA

Úrúgvæ 2 - 2 Grænhöfðaeyjar
0-1 Kevin Lenini ('21 )
1-1 Maximiliano Araujo ('44 )
2-1 Agustin Canobbio ('45 )
2-2 Helio Varela ('61 )
Grænhöfðaeyjar náðu í annað stig sitt á heimsmeistaramótinu þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Úrúgvæ í annarri umferð H-riðils á Hard Rock-leikvanginum í Miami í kvöld.

Úrúgvæ fór illa að ráði sínu í fyrstu umferðinni þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Sádi-Arabíu í leik þar sem það var með mikla yfirburði. Úrúgvæum tókst ekki að bæta fyrir það í kvöld.

Grænhöfðaeyjar hafa verið eitt af skemmtilegri liðum mótsins til þessa og ástríðan í liðinu hefur verið áberandi. Nýliðarnir verðskulduðu fyllilega að komast yfir á 21. mínútu.

Kevin Lenini Pina tók langt tilhlaup í aukaspyrnu og hamraði boltanum af löngu færi niðri í hægra hornið. Boltinn söng í netinu en það má þó setja spurningarmerki við Fernando Muslera í marki Úrúgvæ, sem hefði líklega átt að gera betur.

Úrúgvæ náði að snúa taflinu við undir lok fyrri hálfleiks. Maxi Araujo jafnaði metin þegar hann hirti frákast eftir að skalli Rodrigo Bentancur fór í stöngina og út í teiginn. Þetta var annað mark Araújo á mótinu og í bæði skiptin hefur hann verið fyrstur á frákastið.

Úrúgvæar skoruðu svo aftur í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Araujo fékk þá háa sendingu inn fyrir, skallaði boltann fyrir Agustin Canobbio sem stýrði honum viðstöðulaust í netið.

Það var mikil dramatík í fyrri hálfleiknum og henni var alls ekki lokið. Um hálftíma fyrir leikslok jöfnuðu Grænhöfðaeyingar metin eftir slaka sendingu til baka hjá Úrúgvæ.

Hélio Varela elti boltann og þótt hættan væri til staðar var hann ekki sloppinn aleinn í gegn. Muslera ákvað engu að síður að rjúka langt út úr markinu og reyna að vinna einvígið. Varela hafði betur, fór framhjá Muslera og setti boltann örugglega í netið.

Mjög sérkennilegt hlaup hjá Muslera, sem átti ekki sinn besta dag í marki Úrúgvæ.

Úrúgvæ kom boltanum í netið átta mínútum síðar eftir mikinn darraðardans í teig Grænhöfðaeyja en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Vozinha, hetja Grænhöfðaeyja í fyrsta leiknum, leit ekki sérstaklega vel út í þeirri atburðarás og reyndi tvívegis að handsama boltann án árangurs.

Nýliðarnir þurftu að hafa sig alla við undir lokin þegar Úrúgvæ sótti stíft að sigurmarkinu en þeir héldu út og tryggðu sér frábært stig.

Niðurstaðan varð 2-2 jafntefli. Svekkjandi úrslit fyrir Úrúgvæ en frábær fyrir Grænhöfðaeyjar, sem eru komnar með tvö stig úr tveimur leikjum, rétt eins og Úrúgvæ.

Úrúgvæ mætir Spáni í lokaumferðinni en Grænhöfðaeyjar mæta Sádi-Arabíu og eiga ágætis möguleika á að komast áfram í 32-liða úrslitin. Tvö stig munu ekki duga Úrúgvæ til að komast áfram og þarf þjóðin því kraftaverk gegn Evrópumeisturunum.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
HM: Grænhöfðaeyjar halda áfram að heilla heiminn - Úrúgvæ í miklum vandræðum
Canon

Mynd: EPA

Úr leiknum í kvöld

Úr leiknum í kvöld

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.