Jón Þór: Það er verk að vinna
Auglýsing

Jón Þór Hauksson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jón Þór Hauksson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, segir verk að vinna til að koma liðinu aftur á rétta braut, en hann ræddi við Fótbolti.net eftir 2-1 tapið gegn ÍBV á Hásteinsvelli í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 1 Stjarnan
Skagamaðurinn sneri aftur í Stjörnuna á dögunum eftir að Jökull Elísabetarson var látinn taka poka sinn.
Hann var að stýra öðrum leik sínum og enn í leit að fyrsta sigrinum.
Jón segir að orkustig Eyjamanna hafi einfaldlega verið jákvæðara en hjá sínum mönnum.
„Gríðarlega svekktur með það tap en að því sögðu fáum við draumabyrjun. Við byrjum leikinn frábærlega en Vestmannaeyingar svöruðu frábærlega, nýttu mótlætið og fannst þeir orkumeiri eftir því sem leið á leikinn. Það var jákvæðari orka í ÍBV-liðinu á meðan náðum við ekki að svara þeim.“
„Það er alveg hárrétt hjá þér. Þá er ég ekki að meina vinnuframlagið sem menn setja í leikinn heldur var jákvæðari orka í ÍBV-liðinu og þeir þétta sig saman eftir þessa slæmu byrjun og ná að snúa leiknum sér í vil og gerðu það feykilega vel. En eins og þú bendir á gæðin í leiknum hjá okkur þá voru fyrirgjafir lélegar þegar við erum að komast í þær stöður og tímasetningar eru ekki góðar þegar við erum að fara á bakvið vörnina. Liðið er að vinna á stóru svæði og náðum aldrei neinum þéttleika á liðið okkar, hvorki varnarlega né sóknarlega, en fyrst og fremst fannst mér þetta snúast um að ná ekki að snúa orkustiginu við í leiknum þrátt fyrir miklar tilraunir til þess þá fengum við aldrei 'mómentið' til að vinna úr,“ sagði Jón Þór við Fótbolti.net.
Hann er ánægður með að vera kominn aftur í Garðabæinn, en að það sé verk að vinna.
„Það er frábærlega tekið á móti mér en það er verk að vinna og það þarf að leggja þá vinnu á sig til að snúa þessu við. Við fáum fínan tíma til þess núna, komin vika á milli leikja þangað til að við byrjum í Evrópukeppninni og margir leikmenn að koma úr meiðslum og öðru slíku. Vonandi gengur það áfram vel,“ sagði Jón Þór í lokin.