Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Æfingaleikur: Noregur vann Skandinavíuslaginn - Isak á skotskónum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Noregur 3 - 1 Svíþjóð
1-0 Jorgen Strand Larsen ('8 )
2-0 Antonio Nusa ('18 )
3-0 Jorgen Strand Larsen ('37 )
3-1 Alexander Isak ('76 )

Noregur fékk Svíþjóð í heimsókn í næst síðasta leik liðanna fyrir HM sem hefst þann 11. júní.

Heimamenn byrjuðu af miklum krafti og voru með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik. Jörgen Strand Larsen, leikmaður Crystal Palace, kom Norðmönnum yfir strax á 8. mínútu þegar hann skallaði boltann í netið eftir fasta fyrirgjöf frá Julian Ryerson, leikmanni Dortmund.

Tíu mínútum síðar bætti Antonio Nusa, leikmaður RB Leipzig, við öðru marki þegar hann skoraði með föstu skoti úr teignum. Strand Larsen skoraði síðan annað mark sitt og þriðja mark Norðmanna með skalla eftir hornspyrnu frá Ryerson.

Alexander Isak, leikmaður Liverpool, kom inn á hjá Svíum þegar tæpur hálftími var til loka venjulegs leiktíma og hann klóraði í bakkann og Sebastian Nanasi skoraði annað mark Svía en það var dæmt af vegna rangstöðu.

Norðmenn hvíldu Erling Haaland og þá var Martin Ödegaard ekki með þar sem tímabilinu hans er nýlokið með Englandsmeisturum Arsenal.

Noregur mætir Marokkó í New Jersey í síðasta leiknum fyrir HM þann 7. júní og Svíar fá Grikki í heimsókn þann 4. júní.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner