Óli Skúla: Þegar við erum á okkar degi þá standast okkur fáir snúning
Auglýsing

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks var að vonum mjög sáttur eftir 3-1 sigur Breiðabliks gegn KA í 11. umferð Bestu Deildarinnar.
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 1 KA
„Við vorum góðir og héldum fókus nánast allan leikinn. Þegar við súmmerum þetta upp þá er þetta bara flott frammistaða.''
KA jafnaði leikinn á 63. mínútu og pressuðu þónokkuð á mark Blika eftir það og var Ólafur spurður út í frammistöðu liðsins eftir jöfnunarmarkið.
„Við höfum oft í sumar verið að leiða leiki og fengið á okkur mörk og stunudm brotnað eftir það. Þeir fengu auðvitað smá orku þegar þeir jafna og slá okkur aðeins af laginu. Við unnum vel í gegnum þennan kafla sem hefur verið höfuðverkur fyrir okkur.''
Arnar Bjarki Gunnleifsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir meistaraflokk Breiðabliks og innsiglaði sigur Breiðabliks í dag.
Sjáðu markið
Hann hefur lagt gríðarlega mikið fram í vetur. Hann á framtíðina fyrir sér og ég er þakklátur fyrir hans hönd að hann sé að uppskera.''
Óli var spurður út í hvað hann tekur úr fyrri umferð deildarinnar, en 11 leikir eru búnir.
„Þegar við erum á okkar degi þá standast okkur fáir snúning. Við erum með gríðarleg gæði og það snýst um að halda fókus og halda áfram.''
Breiðablik spilar tvo leiki í röð við Víkinga, í deild og bikar. Leikirnir verða spilaðir 25. og 28. júní.
„Víkingar hafi verið á gríðarlegu skriði og ég býst við hörkuleikjum. Víkingar hafa unnið alla leiki síðan í 1. umferð gegn okkur en við vitum alveg hvað í okkur býr.''