Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson var ekki sáttur eftir 1-0 tapið gegn Japan í vináttulandsleik þjóðanna í Tókýó í gær en ræddi nýja reglugerð FIFA sérstaklega og ætlar sér að senda alþjóðafótboltasambandinu bréf.
Lestu um leikinn: Japan 1 - 0 Ísland
Nýjar reglur FIFA voru notaðir í landsleiknum, reglur sem verða notaðar á komandi heimsmeistaramóti.
Ein af þeim reglum er sú að leikmaður hefur aðeins tíu sekúndur til að ganga af velli etir að skiptingarskiltinu er komið á loft. Ef leikmaðurinn tekur sér lengri tíma í það mun sá sem kemur inn á í staðinn ekki fá leyfi til að gera það fyrr en mínúta hefur liðið og leikurinn er stopp.
Það kom fyrir þegar Kristian Nökkvi Hlynsson fór af velli, en Ísak Snær Þorvaldsson þurfti að bíða lengur en vanalega til að koma inn á og þá skoraði japanska liðið.
„Fyrst ætla ég að senda bréf á FIFA því ég er ekki alveg nógu sáttur við þessa reglugerð. Hún var upprunalega gerð til að koma í veg fyrir tafir en hún virkar þannig að þegar þeir skora sigurmarkið erum við einum færri. Kristian var of seinn að koma út af, en hin hliðin á teningnum er sú að ef fólk vill þetta þá fá áhorfendur lágvarnar fótbolta hjá liðinu sem er einum manni færri. Það er ekki þróun sem heillar mig mjög mikið,“ sagði Arnar.
Benti hann einnig á höfuðmeiðslin sem Mikael Egill Ellertsson varð fyrir á 77. mínútu etir hornspyrnu. Þar sem hugað var að honum inn á vellinum var honum skylt að vera utan vallar í rúma mínútu.
„Við misstum Mikka líka út af með höfuðmeiðsli og Japaninn fer óvart í hausinn á honum og allt í einu erum við færri í eina mínútu eða tvær eða hvað sem er. Jakkafötin sem ákváðu þessar reglur, þetta er ekki alveg að virka fyrir fótboltann að mínu mati og þetta þarf að skoða mjög vel og vandlega,“ sagði Arnar.



