Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 09:33
Kári Snorrason
Slot: Ég skildi við Liverpool nákvæmlega þar sem liðið á heima
Arne Slot var rekinn á laugardag.
Arne Slot var rekinn á laugardag.
Mynd: EPA
Andoni Iraola mun fara í formlegar viðræður við Liverpool í vikunni.
Andoni Iraola mun fara í formlegar viðræður við Liverpool í vikunni.
Mynd: EPA
Arne Slot segir að hann skilji við Liverpool þar sem félagið eigi heima, á meðal þeirra bestu í Evrópu.

Slot var rekinn sem stjóri liðsins á laugardag, aðeins ári eftir að hann stýrði Liverpool til Englandsmeistaratitils á sínu fyrsta tímabili.

Gengi liðsins var hins vegar mun lakara á nýloknu tímabili þar sem Liverpool endaði í fimmta sæti, 25 stigum á eftir meisturum Arsenal.

Í opnu bréfi til stuðningsmanna sem birtist í Liverpool Echo
sagðist Slot vera stoltur af því að hafa tryggt Liverpool sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

„Ég fer með fulla trú á því sem er framundan. Leikmennirnir hafa lagt mikið á sig fyrir þetta félag og byggt grunn sem mun standa áfram,“ sagði Slot.

Hann þakkaði stuðningsmönnum Liverpool sérstaklega fyrir móttökurnar og minntist titilsins sem liðið vann á Anfield á síðasta ári.

„Tuttugasti Englandsmeistaratitill Liverpool tilheyrir okkur öllum og verður mikilvægur kafli í sögu félagsins,“ sagði Slot.

Í bréfinu minntist Slot einnig Diogo Jota og sagði samstöðu stuðningsmanna vera stærri og meiri en bara tengd fótbolta.
Slapp
banner