01.07.05 - 14:48
Hafliði Breiðfjörð
O´Callaghan í raðir Guðjóns Þórðarsonar (Staðfest)




Guðjón Þórðarson keypti í dag annan leikmann sinn í sumar til Notts County er Írinn Brian O´Callaghan gekk í raðir félagsins. O´Callaghan lék undir stjórn Guðjóns hjá Barnsley og Guðjón fékk hann einnig til Keflavíkur þar sem hann lék nokkra leiki en fór fljótlega eftir að Guðjón hætti hjá félaginu.
O´Callaghan skrifaði undir eins árs samning hjá Notts County í dag en auk þess er Kevin Pilkington fyrrum markvörður Manchester United kominn til félagsins.
O´Callaghan er enn skráður í Keflavík en ekki er búist við að neitt vandamál komi upp við félagaskiptin og þau verða væntanlega frágengin innan sólarhrings.
O´Callaghan er enn skráður í Keflavík en ekki er búist við að neitt vandamál komi upp við félagaskiptin og þau verða væntanlega frágengin innan sólarhrings.
