01.07.05 - 15:25
Magnús Már Einarsson
Garcia og Diogo til Real Madrid (Staðfest)

Pablo Garcia í baráttu við David Beckham.


Pablo Garcia í baráttu við David Beckham.

Real Madrid hefur fengið Pablo Garcia frá Osasuna og Diogo frá River Plate en báðir eru þeir frá Úrúgvæ. Garcia sem er 28 ára baráttuhundur hefur gert fjögurra ára samning við Real Madrid en hann spilar aftarlega á miðjunni. Til marks um baráttu Garcia má nefna að hann fékk 18 gul spjöld og eitt rautt í La Liga á síðustu leiktíð.
Diogo sem er 21 árs getur spilað bæði í vörninni eða á miðjunni. Bæði Diogo og Garcia verða kynntir sem leikmenn Real Madrid í næstu viku og munu þeir síðan fara með liðinu í æfingaferð til Bandaríkjanna, Kína, Japan og Tælands.
Sjá einnig:
Lítil grein okkar um Garcia lýsing stuðningsmanns Osasuna á honum
Sjá einnig:
Lítil grein okkar um Garcia lýsing stuðningsmanns Osasuna á honum
