Gerir tveggja ára samning við Barcelona

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Danski varnarmaðurinn Andreas Christensen er búinn að gera tveggja ára samning við Barcelona eftir að gamli samningurinn hans rann út um mánaðamótin.

TENGT EFNI
Flick vill halda Christensen
Christensen er þrítugur miðvörður sem hefur ekki fengið mikinn spiltíma frá félagaskiptum sínum til Barcelona vegna mikilla meiðslavandræða.
Hann kom aðeins við sögu í 18 leikjum á síðustu leiktíð eftir að hafa aðeins tekið þátt í 6 leikjum tímabilið þar áður. Christensen, sem á 81 landsleik að baki fyrir Danmörku, hefur einnig spilað fyrir Chelsea og Borussia Mönchengladbach á ferlinum.
Christensen gæti reynst lykilmaður fyrir Börsunga ef hann heldur sér frá meiðslum á komandi leiktíð.

Blaugrana still, Andreas ?????? pic.twitter.com/gL6K4SrrkR
— FC Barcelona (@FCBarcelona) July 1, 2026

Mynd: EPA