Besta deild kvenna: Breiðablik valtaði yfir Val - FH vann Stjörnuna í tíu marka leik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik og FH unnu stórsigra í Bestu deild kvenna í kvöld. Breiðablik heimsótti Val á Hlíðarenda.
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir kom Breiðabliki yfir snemma leiks og Bryndís Eiríksdóttir varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net stuttu síðar eftir sendingu frá Hrafnhildi.

Hrafnhildur var hvergi nærri hætt því hún skoraði þriðja mark Breiðabliks þegar hún vippaði yfir Tinnu Brá Magnúsdóttir í marki Vals.
Eftir um 25 mínútna leik skoraði Agla María Albertsdóttir fjórða mark Breiðabliks og Hrafnhildur fullkomnaði þrennu sína tíu mínútum síðar eftir sendingu frá Öglu Maríu.
Þær skiptu síðan með sér hlutverkum undir lok fyrri hálfleiks þegar Agla María skoraði sjötta mark Breiðabliks.
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir skoraði sárabótamark fyrir Val eftir rúmlega klukkutíma leik en Hrafnhildur negldi síðasta naglann í kistu Vals með sínu fjórða marki og sjöunda marki Breiðabliks.
Það var önnur eins markaveisla þegar FH fékk Stjörnuna í heimsókn. Ída Marín Hermannsdóttir skoraði tvö fyrstu mörkin fyrir FH en Andrea Mist Pálsdóttir minnkaði muninn.
Birna Kristín Björnsdóttir skoraði síðan þriðja mark FH og Hafrún Birna Helgadóttir bætti fjórða markinu við stuttu síðar.
Murielle Tiernan minnkaði muninn fyrir Stjörnuna en FH-ingar svöruðu með þremur mörkum og þær voru komnar með 7-2 forystu. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir skoraði sárabótamark fyrir Stjörnuna í lokin. Magnaður tíu marka leikur.
FH er á toppnum með 29 stig, tveimur stigum á undan Breiðabliki sem er í 2. sæti. Stjarnan er í 3. sæti með 21 stig og Valur er í 9. sæti með 10 stig.
Valur 1 - 7 Breiðablik
0-1 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('5 )
0-2 Bryndís Eiríksdóttir ('12 , sjálfsmark)
0-3 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('22 )
0-4 Agla María Albertsdóttir ('26 )
0-5 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('35 )
0-6 Agla María Albertsdóttir ('45 )
1-6 Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir ('64 )
1-7 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('84 )
Lestu um leikinn
FH 7 - 3 Stjarnan
1-0 Ída Marín Hermannsdóttir ('14 )
2-0 Ída Marín Hermannsdóttir ('26 )
2-1 Andrea Mist Pálsdóttir ('29 )
3-1 Birna Kristín Björnsdóttir ('32 )
4-1 Hafrún Birna Helgadóttir ('35 )
4-2 Murielle Tiernan ('69 )
5-2 Hrönn Haraldsdóttir ('72 )
6-2 Nia Raisa Christopher ('77 )
7-2 Hrönn Haraldsdóttir ('87 )
7-3 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('90 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | FH | 12 | +25 | 29 |
| 2 | Breiðablik | 12 | +22 | 27 |
| 3 | Stjarnan | 12 | +5 | 21 |
| 4 | ÍBV | 12 | -1 | 20 |
| 5 | Grindavík/Njarðvík | 12 | -7 | 15 |
| 6 | Þróttur R. | 12 | -5 | 13 |
| 7 | Fram | 12 | -12 | 13 |
| 8 | Þór/KA | 12 | -5 | 12 |
| 9 | Valur | 12 | -10 | 10 |
| 10 | Víkingur R. | 12 | -12 | 10 |