Fotbolti.net
01.07.26 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson

HM: Harry Kane kom Englandi til bjargar

HM: Harry Kane kom Englandi til bjargar
Canon

Mynd: EPA

England 2 - 1 Kongó
0-1 Brian Cipenga ('7 )
1-1 Harry Kane ('75 )
2-1 Harry Kane ('86 )
Kongó yfir gegn Englandi í hálfleik í svakalegum leik
TENGT EFNI

Kongó yfir gegn Englandi í hálfleik í svakalegum leik

England og Kongó áttust við í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í dag og náði Kongó óvænt forystunni snemma leiks. Englendingar höfðu byrjað af miklum krafti með hápressu en Brian Cipenga refsaði með marki eftir góða skásendingu frá Chancel Mbemba.

Enska vörnin gleymdi sér og þá sérstaklega Djed Spence í hægri bakvarðarstöðunni, sem skildi Cipenga eftir einan og óvaldaðan.

Englendingar virtust vera pirraðir eftir opnunarmark Cipenga og komust lítið áleiðis til að byrja með. Þegar tók að líða á hálfleikinn fengu þeir sífellt betri tækifæri og vildu fá vítaspyrnu þegar Harry Kane féll til jarðar innan teigs, en ekkert var dæmt þrátt fyrir snertingu.

England fékk nokkur dauðafæri en tókst ekki að minnka muninn. Sagan hélt áfram í síðari hálfleik allt þar til á 75. mínútu þegar Kane gerði mjög vel að skalla mjúka fyrirgjöf frá Anthony Gordon í netið.

Kane var svo aftur á ferðinni ellefu mínútum síðar þegar hann skoraði eftir glæsilegt einstaklingsframtak við vítateigslínuna, eftir að hafa fengið sendingu frá Gordon. Hann kláraði með frábæru skoti sem öflugur markvörður Kongó réði ekki við.

Kongó leitaði að jöfnunarmarki en tókst ekki að skapa mikla hættu gegn sterku liði Englendinga, svo lokatölur urðu 2-1.

England mætir Mexíkó í 16-liða úrslitum og mun sigurvegarinn úr þeirri viðureign spila við annað hvort Noreg eða Brasilíu í 8-liða úrslitum.
HM: Harry Kane kom Englandi til bjargar
Canon

Mynd: EPA

HM: Harry Kane kom Englandi til bjargar
Canon

Mynd: EPA

HM: Harry Kane kom Englandi til bjargar
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.