Fotbolti.net
01.07.26 - 16:52
Elvar Geir Magnússon

Kongó yfir gegn Englandi í hálfleik í svakalegum leik

Kongó leiðir gegn Englandi í hálfleik.

Kongó leiðir gegn Englandi í hálfleik.

Canon

Mynd: EPA

Kongó leiðir óvænt 1-0 gegn Englandi í hálfleik í 32-liða úrslitum HM en leikurinn fer fram í Atlanta. Fylgst er með leiknum í lýsingu sem má nálgast á forsíðu.

Fyrri hálfleikur var gríðarlega tíðindamikill og skemmtilegur en í húfi er leikur gegn Mexíkó í 16-liða úrslitum, á hinum goðsagnakennda Azteca leikvangi.
Brian Cipenga kom Kongó yfir á sjöundu mínútu þegar varnarskipulag Englands var algjörlega í ruglinu. Cipenga var einn og óáreittur í teignum þegar hann skaut og skoraði framhjá Jordan Pickford á nærstönginni

Margir hefðu viljað sjá Pickford gera betur en varnarleikur Englands var allavega ekki til útflutnings.

Cipenga, sem spilar fyrir Almeria í spænsku B-deildinni, skoraði sitt fyrsta landsliðsmark.

England var nokkrum sinnum nálægt því að jafna í fyrri hálfleik, aldrei nær en þegar bjargað var á marklínu frá Marcus Rashford. Þá hefur markvörður Kongó átt nokkrar hörkuvörslur.

Í lok fyrri hálfleiks hefði Kongó getað tvöfaldað forystuna en Yoane Wissa skaut framhjá úr algjöru dauðafæri. England gerði svo tilkall til þess að fá vítaspyrnu þegar Harry Kane fór niður í teignum en ekkert var dæmt. Umdeilt atvik.

Þess má geta að Englandi hefur mistekist að vinna síðustu þrettán HM leiki þegar mótherjinn skorar fyrsta markið.

Fylgstu með lýsingu frá leiknum
Harry Kane fékk ekki víti.

Harry Kane fékk ekki víti.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.