Fotbolti.net
01.08.05 - 13:37

Julio Baptista til Real Madrid (Staðfest)

Julio Baptista til Real Madrid (Staðfest)
Canon
Julio Baptista hefur skrifað undir samning við stórlið Real Madrid. Eins og við greindum frá fyrr í vikunni var Baptista á leiðinni á Santiago Bernabeau ásamt landa sínum Robinho. Baptista var kynntur fyrir stuðningsmönnum Real í morgun en 500 manns mættu til að sjá hann í fyrsta skipti í treyju Real.
Kaupverðið á hinum 23 ára gamla Baptista eru 20 milljónir Evra en ásamt Real hafði Arsenal mikinn áhuga á að fá hann til sín. Baptista var í skýjunum yfir fimm ára samningi sínum við Madrídarliðið: "Þetta er mesti gleðidagur lífs míns" sagði Baptista. "Ég vona að tími minn hér verði árangursríkur og að ég nái að hjálpa Real að vinna til margra titla."

Florentino Perez forseti Real hrósaði Baptista ekki bara fyrir knattspyrnugetuna heldur einnig fyrir persónuleika hans: "Baptista er frábær leikmaður og frábær persóna.

Hann kemur frá Brasilíu, mekku bestu knattspyrnu sem spiluð er í heiminum. Fyrir alla þá táknar Brasilía töfra og sköpunarglepu í knattspyrnunni og þessvegna höfum við reynt að fá leikmenn þaðan í liðið okkar."


Sóknarlína Real Madrid er þá orðin ansi vænleg með þá Bapista, Ronaldo og Robinho fremsta í flokki að ógleymdum gulldrengnum Raúl.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.