Fotbolti.net
01.09.19 - 13:20
Kristófer Jónsson

Jón Þór: Verkefnið er bara hálfnað

Auglýsing
Jón Þór hvetur alla til að mæta á völlinn.

Jón Þór hvetur alla til að mæta á völlinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Íslenska kvennalandsliðið mun annað kvöld spila leik gegn Slóvakíu á Laugardalsvelli í undankeppni Evrópumótsins. Íslenska liðið byrjaði keppnina á góðum 4-1 sigri gegn Ungverjalandi á fimmtudaginn síðastliðinn. Jón Þór Hauksson, þjálfari liðsins, segir stelpurnar vera vel stemmdar fyrir leiknum.

<i>"Stemmning er frábær og leikmennirnir eru klárir í slaginn. Við höfum farið vel yfir Slóvakanna og það er ljóst að okkar bíður erfiður leikur og við þurfum að vera tilbúin frá fyrstu mínútu eins og á fimmtudaginn"</i> sagði Jón Þór í samtali við Fótbolta.net í dag.
Eins og fyrr segir vann íslenska liðið góðan 4-1 sigur gegn Ungverjum síðastliðinn fimmtudag. Jón Þór býst við því að gera breytingar á byrjunarliðinu gegn Slóvakíu á morgun.

„Staðan á hópnum er góð og allir leikmenn eru heilir. Það er frábær einbeiting og og leikmennirnir eiga hrós skilið hvernig þær hafa staðið sig í þessu verkefni hingað til. En við þurfum að gera okkur grein fyrir því að það er bara hálfnað og við erum komin með þrjú stig af þeim sex sem við ætluðum okkur."

Leikurinn gegn Slóvakíu hefst klukkan 18:45 á Laugardalsvelli á morgun, mánudaginn 2.september, og er enn hægt að kaupa sér miða á hann.

„Endilega koma á völlinn og styðja stelpurnar. Þær eiga það skilið og hafa lagt hart að sér til að spila fyrir Ísland. Það er frábært veður og allt til staðar." sagði Jón Þór að lokum.

Hægt er að kaupa sér miða á leikinn með því að smella hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.