Gylfi Tryggva: Þær byggðu Kínamúrinn á fimm mínútum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór/KA skoraði eina mark leiksins.

Úr leiknum í kvöld.

Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur var sáttur þrátt fyrir naumt tap gegn Þór/KA í Bestu deildinni fyrr í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór/KA 1 - 0 Grindavík/Njarðvík
Margrét Árnadóttir skoraði eina mark leiksins á þriðju mínútu er liðin mættust á Akureyri.
Grindavík/Njarðvík fékk fín færi til að jafna en nýtti þau ekki og er Gylfi ánægður með frammistöðu lærlinga sinna.
„Ég er bara sáttur, ég hef ekkert á móti því að liðið mitt spili fótbolta svona. Við töpum einum og einum leik á að spila svona en ég held að ef við spilum þennan leik aftur 100 sinnum þá vinnum við í flest skiptin. Ég er ánægður með frammistöðuna, við erum búin að vera í mikilli pásu, þetta er búið að vera mjög slitið mót og margt sem væri hægt að ræða um það. Ég er ánægður með hvernig við mætum hingað eftir mjög langa pása og náum strax að komast í okkar ryþma og spila okkar leik. Það vantaði bara að drulla boltanum yfir línuna," sagði Gylfi eftir tapið.
„Ég upplifi meiri ánægju á því að tapa með þessum hætti heldur en að vinna leik þegar við erum lélegara liðið á vellinum. Til lengri tíma er betra að sýna góðar frammistöður, þær eru líklegri til að skila góðum árangri. Við þurfum að bæta okkur í að binda endi á sóknirnar og það er sá fasi sem við erum á núna. Þegar við náum því þá munum við vinna svo ógeðslega mikið af leikjum útaf því að við höfum verið að dóminera andstæðingana okkar á löngum köflum í allt sumar. Við viljum ekki spila eins og Paragvæ, það skilar ekki árangri til langs tíma."
Gylfi segist vera óánægður með að hafa fengið mark á sig úr föstu leikatriði en annars sé hann ánægður með frammistöðuna. Hann talaði einnig um nýja leikmenn sem eru á leið til liðsins og er augljóslega með mikinn metnað fyrir framtíðinni á Reykjanesinu, auk þess að tala ítarlegar um slitin á Íslandsmótinu.
„Við vorum ekkert að vaða í færum, þetta er erfitt. Þær settu upp hérna Kínamúrinn og byggðu hann á fimm mínútum eftir að þær skoruðu og gerðu það bara vel. Þær unnu leikinn og það er það sem þær þurftu að gera í dag."
Grindavík/Njarðvík er með 12 stig eftir 10 umferðir af deildartímabilinu, aðeins þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið.