Fotbolti.net
10.07.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Eiður Aron framlengir

Eiður Aron framlengir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Eiður Aron Sigurbjörnsson er búinn að framlengja samning sinn við Njarðvík út næsta keppnistímabil.
Eiður Aron gekk upprunalega til liðs við Njarðvík í vetur og gerði eins árs samning. Hann var strax gerður að fyrirliða liðsins og hefur byrjað alla leiki liðsins í Lengjudeildinni í sumar.

Eiður er 36 ára gamall og var á mála hjá ÍBV, Val og Vestra áður en hann skipti til Njarðvíkur. Hann á leiki að baki í atvinnumennsku og fyrir A-landslið Íslands og starfar einnig við þjálfun í yngri flokkum í Njarðvík.

„Knattspyrnudeildin óskar Eiði innilega til hamingju með nýja samninginn og hlakkar til að fylgjast með honum og félögum hans í eldlínunni í lokasprettinum í Lengjudeildinni!" segir í tilkynningu frá Njarðvík.

Njarðvík er í sjöunda sæti Lengjudeildarinnar með 17 stig eftir 12 umferðir, aðeins tveimur stigum frá umspilssæti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.