Fotbolti.net
10.07.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Napoli reynir að kaupa argentínskan kantmann

Zeballos er 170 sm á hæð.

Zeballos er 170 sm á hæð.

Canon

Mynd: EPA

Napoli er búið að ná samkomulagi við Argentínumanninn knáa Exequiel Zeballos.
Zeballos er 24 ára vinstri kantmaður sem hefur leikið 140 leiki fyrir Boca Juniors í heimalandinu.

Zeballos er búinn að semja um fimm ára samning við Napoli en ítalska stórveldið á eftir að ná samkomulagi við Boca um kaupverð. Napoli þarf að selja leikmenn áður en félagið getur keypt inn nýjan mann.

CSKA Moskva reyndi einnig að krækja í Zeballos en kantmaðurinn neitaði að semja við félagið þrátt fyrir stóran launapakka. Hann er gríðarlega spenntur fyrir Napoli þar sem hann getur fetað í fótspor ýmissa samlanda sinna.

Stuðningsmenn Napoli vonast til að Zeballos geti reynst nýi Lorenzo Insigne fyrir félagið.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.