Fotbolti.net
01.09.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Segja Juve hafa hætt við Martínez útaf puttanum

Segja Juve hafa hætt við Martínez útaf puttanum
Canon

Mynd: EPA

Ítalskir fjölmiðlar segja frá því að Juventus hafi hætt við að kaupa Emiliano Martínez frá Aston Villa í sumar af ótta við meiðslahættu eftir að hann spilaði puttabrotinn með Argentínu á HM.
Emi Martínez puttabrotnaði í upphitun
TENGT EFNI

Emi Martínez puttabrotnaði í upphitun

Martínez puttabrotnaði fyrir úrslitaleik Evrópudeildarinnar í maí og neitaði að fara í aðgerð til þess að eiga ekki í hættu á að missa af heimsmeistaramótinu sem hófst nokkrum vikum síðar.

Chelsea keypti Martínez á dögunum fyrir 7,5 milljónir punda og varði hann mark liðsins í 4-3 sigri gegn Brighton um helgina. Fyrir nokkrum vikum var hann búinn að semja við Juventus, en ítalska stórveldið hætti við félagaskiptin.

Í upphafi héldu fjölmiðlar að Juve hafi mistekist að semja við Aston Villa um kaupverð, en það er ekki raunin. Stjórnendur Juve óttast að Martínez muni lenda í meiðslum á næstunni útaf puttanum.

Aðgerð hefði mögulega haldið Martínez frá keppni allt heimsmeistaramótið en hann þraukaði í gegnum sársaukann og hjálpaði Argentínu alla leið í úrslitaleikinn, þar sem honum tókst þó ekki að stöðva Spánverjana nógu lengi til að knýja fram vítaspyrnukeppni þrátt fyrir að hafa átt frábæran leik.

Juve snéri sér þess í stað að Guglielmo Vicario, ítölskum markverði Tottenham sem hefur haldið hreinu í fyrstu tveimur deildarleikjunum á nýju tímabili.

Emi Martínez til Chelsea (Staðfest)
TENGT EFNI

Emi Martínez til Chelsea (Staðfest)

Segja Juve hafa hætt við Martínez útaf puttanum
Canon

Mynd: EPA

Segja Juve hafa hætt við Martínez útaf puttanum
Canon

Mynd: Juventus

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.