Fotbolti.net
01.10.26 - 10:05
Elvar Geir Magnússon

Tekur upp hanskann fyrir Ronaldo - „Jesus sveik hann“

Ronaldo yfirgaf portúgalska landsliðshópinn.

Ronaldo yfirgaf portúgalska landsliðshópinn.

Canon

Mynd: EPA

Fátt annað en frekjukast Cristiano Ronaldo kemst að í portúgölskum fjölmiðlum en ofurstjarnan strunsaði út úr landsliðshópnum og mögulega er landsliðsferill hans á enda.

Ronaldo fundaði með landsliðsþjálfaranum en hann var verulega ósáttur við að koma ekki við sögu í 2-1 sigri gegn Noregi á sunnudag. Fundurinn endaði ekki vel og Ronaldo, sem er 41 árs, sagði skilið við hópinn.

Portúgalska liðið var komið til Danmerkur þar sem það mun spila við heimamenn á Parken í kvöld. Einkaþota Ronaldo lenti í Kaupmannahöfn í gærkvöldi og náði í hann.
Systir Ronaldo: Portúgal á þig ekki skilið
TENGT EFNI

Systir Ronaldo: Portúgal á þig ekki skilið

Blaðamaðurinn Edu Aguirre, sem er vinur Ronaldo, kemur sínum manni til varnar og segir Jesus hafi svikið hann.

„Það var fundur í gær. Fundur milli forseta sambandsins, þjálfarans og Cristiano. Jorge Jesus bað Ronaldo afsökunar á þeirri vanvirðingu sem sýnd var með því að láta hann hita upp í 30 mínútur án þess að láta hann spila. Hann sagði honum líka að hann myndi biðjast afsökunar opinberlega, að hann myndi viðurkenna mistök sín," segir Aguirre.

„Jesus stóð ekki við þessi orð sín heldur fer á fréttamannafund og lýgur. Þess vegna springur Cristiano, vegna þess að honum finnst hann hafa verið svikinn."

Yfirlýsing Ronaldo í gær
„Eftir fréttamannafund landsliðsins og samtal við forseta portúgalska fótboltasambandsins hef ég tekið ákvörðun um að yfirgefa landsliðsbúðirnar," sagði í yfirlýsingu frá Ronaldo sem hann birti á Instagram í gær.

„Ég mun upplýsa portúgölsku þjóðina um hvað fór raunverulega fram þegar tíminn er réttur. Núna vil ég óska portúgalska landsliðinu og öllum liðsfélögum mínum góðs gengis í framhaldinu."
Var ónotaður varamaður gegn Noregi.

Var ónotaður varamaður gegn Noregi.

Canon

Mynd: EPA

Jorge Jesus landsliðsþjálfari Portúgals.

Jorge Jesus landsliðsþjálfari Portúgals.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.