Fotbolti.net
30.09.26 - 19:36
Ívan Guðjón Baldursson

Ronaldo yfirgefur landsliðsbúðirnar

Ronaldo yfirgefur landsliðsbúðirnar
Canon

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo hefur yfirgefið landsliðsbúðir portúgalska landsliðsins eftir ósætti við Jorge Jesus, nýjan landsliðsþjálfara.
Krísufundur með Ronaldo
TENGT EFNI

Krísufundur með Ronaldo

Ronaldo var ötull talsmaður þess að Jesus, sem þjálfaði hann og Joao Félix hjá Al-Nassr á síðustu leiktíð, yrði ráðinn sem nýr landsliðsþjálfari Portúgala eftir slakan árangur á HM í sumar.

Ronaldo var í byrjunarliðinu í naumum sigri gegn Wales í fyrsta leik Jesus við stjórnvölinn. Honum var skipt af velli eftir 67 mínútur og eftir leikslok sagðist hann vera tilbúinn að sinna hvaða hlutverki sem þjálfarinn óskaði eftir, þó það væri að sitja á bekknum eða uppi í stúku.

Hann kom svo ekki við sögu í 1-2 sigri á útivelli gegn Noregi á dögunum og tók því illa. Ronaldo rauk beint í leikmannagöngin eftir lokaflautið í Noregi, án þess að kveðja stuðningsmenn Portúgal sem ferðuðust á leikinn.

Ronaldo, Jesus og portúgalska fótboltasambandið héldu svo neyðarfund í dag til að fara yfir stöðu mála. Talið er að Ronaldo hafi talið Jesus vera búinn að lofa sér að spila minnst 30 mínútur í hverjum leik, en Jesus virðist ekki á sömu blaðsíðu.

„Eftir fréttamannafund landsliðsins og samtal við forseta portúgalska fótboltasambandsins hef ég tekið ákvörðun um að yfirgefa landsliðsbúðirnar," segir í yfirlýsingu frá Ronaldo.

„Ég mun upplýsa portúgölsku þjóðina um hvað fór raunverulega fram þegar tíminn er réttur. Núna vil ég óska portúgalska landsliðinu og öllum liðsfélögum mínum góðs gengis í framhaldinu."


Ronaldo yfirgefur landsliðsbúðirnar
Canon

Mynd: EPA

Ronaldo yfirgefur landsliðsbúðirnar
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.