Fotbolti.net
30.09.26 - 22:02
Ívan Guðjón Baldursson

Systir Ronaldo: Portúgal á þig ekki skilið

Systir Ronaldo: Portúgal á þig ekki skilið
Canon

Mynd: EPA

Elma Aveiro, systir Cristiano Ronaldo, hefur tjáð sig um dramatíkina í kringum bróður sinn sem yfirgaf landsliðsbúðir Portúgal í dag.
Krísufundur með Ronaldo
TENGT EFNI

Krísufundur með Ronaldo

Ronaldo hefur fengið mikla gagnrýni fyrir að taka frekjukast með portúgalska landsliðinu. Hann fékk ekki að taka þátt í sigri gegn Noregi á dögunum og fór í fýlu. Hann var ósáttur með orð Jorge Jesus landsliðsþjálfara á fréttamannafundi í dag og ræddi við forseta portúgalska fótboltasambandsins áður en hann yfirgaf landsliðsbúðirnar.

„CR7 átti meiri virðingu skilið og landsliðið átti skilið meiri strúktúr. Portúgölsk fréttamennska átti skilið meiri hæfni og minni kjaftasögur," segir meðal annars í færslu sem Elma endurbirti í Instagram Story.

„Þegar kemur að portúgölsku þjóðinni, jæja... þau eiga ekki skilið að eiga þann besta í neinu. Við erum öfundsjúk, svívirðileg, fáfróð og eigum skilið að hverfa aftur til meðalmennskunnar sem við höfum alltaf búið við fyrir tíð CR7.

„Takk fyrir allt CR7! Þú áttir betra skilið!"
Systir Ronaldo: Portúgal á þig ekki skilið
Canon

Mynd: EPA

Systir Ronaldo: Portúgal á þig ekki skilið
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.