Fotbolti.net
26.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Garnacho eyðir öllu tengdu Aston Villa á samfélagsmiðlum

Garnacho eyðir öllu tengdu Aston Villa á samfélagsmiðlum
Canon

Mynd: EPA

Framtíð Alejandro Garnacho hjá Aston Villa er í uppnámi en hann hefur aðeins spilað samtals 95 mínútur í öllum keppnum á tímabilinu.
Glöggir stuðningsmenn tóku eftir því að hann hefur eytt öllum myndum tengdum Aston Villa á Instagram síðu sinni.

Það vakti athygli að Unai Emery, stjóri Aston Villa, valdi tvo markmenn á bekkinn í 1-0 tapi gegn Galatasaray í vikunni en Garnacho var ekki í hópnum.

Hann hefur ekki verið í hópnum í þremur leikjum í röð. Garnacho er á láni frá Chelsea en það er kaupskylda er í lánssamningnum og eru skilyrðin fyrir því að hún taki gildi nokkuð auðveld viðureignar. Villa virðist hins vegar vera að gera sitt besta til að komast hjá því að virkja hana.

Þetta er annað árið í röð sem Villa gerir lánssamning með kaupskyldu og hættir síðan að nota viðkomandi leikmann. Félagið fékk Harvey Elliott á láni frá Liverpool en ákvað síðar að hætta að spila honum til að komast hjá því að virkja kaupskylduna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.