Fotbolti.net
26.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Áfrýjun Barcelona hafnað - Fermin missir af risaleik

Áfrýjun Barcelona hafnað - Fermin missir af risaleik
Canon

Mynd: EPA

Fermin Lopez, leikmaður Barcelona, missir af næstu tveimur leikjum Barcelona þar sem hann tekur út leikbann eftir að hafa fengið rautt spjald í 3-2 sigri á Villareal um síðustu helgi.

Barcelona var tveimur mörkum undir en Gerard Martin minnkaði muninn og Lopez jafnaði metin áður en sjálfsmark frá Pau Navarro tryggði liðinu sigurinn.
Lopez fékk rautt spjald eftir að hann var farinn af velli fyrir að hrauna yfir fjórða dómarann. Barcelona áfrýjaði dómnum en því var hafnað og hann var dæmdur í tveggja leikja bann.

Hann missir því af leik gegn Deportivo la Coruna um helgina og gegn Atletico á miðvikudaginn. Barcelona er á toppnum mð 36 stig, þremur stigum á undan Real Madrid og fiimm stigum á undan Atletico.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.