01.11.26 - 14:54
Brynjar Ingi Erluson
Solskjær styður Carrick en gæti ekki sagt nei ef kallið kæmi

Ole Gunnar Solskjær og Michael Carrick

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Ole Gunnar Solskjær og Michael Carrick

Mynd: EPA
Ole Gunnar Solskjær, fyrrum leikmaður og stjóri Manchester United, hefur lýst yfir stuðningi við Michael Carrick, núverandi stjóra félagsins, en viðurkennir að hann gæti aldrei hafnað því að taka aftur við liðinu ef til hans yrði leitað.

TENGT EFNI
Carrick býst við að stýra næsta leik - „Hlutirnir ekki að falla með okkur“
Solskjær tók við Manchester United árið 2018 og undir hans stjórn endaði liðið tvisvar sinnum á meðal fjögurra efstu liða ensku úrvalsdeildarinnar.
Hann var rekinn undir lok árs 2021 eftir slæma byrjun á tímabilinu, en í byrjun þessa árs kom til greina að hann myndi snúa aftur og taka tímabundið við liðinu.
Á endanum varð Michael Carrick fyrir valinu og fékk hann síðar starfið til frambúðar. Þeir tveir unnu saman hjá United en Carrick var aðstoðarmaður Solskjær á tíma hans sem stjóri félagsins.
„Þegar ég ræddi við United hrósaði ég Michael (Carrick) líka. Ég sagði við þá: 'Ef þið veljið hann eruð þið að fá góðan mann.' Ég held að hann hafi sagt það sama um mig.“
„Hvorugur okkar var örvæntingarfullur að fá starfið. Við hefðum báðir tekið við ef félagið hefði óskað eftir því, en á þessum tímapunkti snerist þetta um að taka tímabundið við út tímabilið.“
„Það er ekki alltaf gott að snúa aftur til einhvers sem hefur ekki alltaf gengið vel, en ég hefði samt tekið við. Ég hafði hins vegar ekki hugsað mér að vera lengur en fram á sumar. Það var líklega rétti tíminn fyrir einhvern annan að fá tækifærið.“
„Mér finnst líka eins og ég eigi ólokið verk hjá félaginu. Auðvitað hefði verið gaman að fá annað tækifæri,“ sagði Solskjær.
Á sínum tíma var því haldið fram að Solskjær hefði gert miklar kröfur í viðræðum sínum við United, en Norðmaðurinn segir það algjört kjaftæði og tekur fram að engar formlegar samningaviðræður hafi átt sér stað.
„Nei, þetta er algjört kjaftæði. Ég átti gott samtal við Jason Wilcox (yfirmann fótboltamála) og Omar Berrada (framkvæmdastjóra United). Við ræddum ekkert um lengd samnings eða neitt slíkt. Ég var einfaldlega tilbúinn að hjálpa ef félagið þyrfti á mér að halda og setti engar kröfur fram.“
„Ég kom mínum sjónarmiðum á framfæri um hvað félagið þyrfti að gera til að halda áfram á réttri braut. Þetta var bara eitt stutt samtal og engar samningaviðræður fóru fram.“
Solskjær telur jafnframt að Carrick standi frammi fyrir mörgum af sömu áskorunum og hann sjálfur þurfti að takast á við hjá United.
„Sumar af þessum áskorunum eru enn til staðar. Ég kalla þetta áskoranir, ekki vandamál. Það eru engin vandamál.“
„Maður sér þetta þegar maður horfir á liðið og þeir sem starfa á bak við tjöldin vita nákvæmlega hvaða áskoranir eru til staðar.“
Solskjær útilokar þó ekki að snúa aftur til United einn daginn. Hann telur Carrick vera rétta manninn til að leiða félagið áfram, en viðurkennir að hann ætti erfitt með að hafna félaginu ef það leitaði aftur til hans.
„Ef Michael stendur sig vel næstu tíu árin og ákveður svo að hætta, og félagið myndi biðja mig um að taka við í tvo mánuði, þá gæti ég auðvitað ekki sagt nei.“
„Michael hefur allt sem þarf til að leiða félagið áfram og ég tel hann vera rétta manninn í starfið. Hann skilur félagið og stuðningsmennina og veit hvað þarf til að ná árangri. Maður sér ekki þennan djöful í honum, en hann er þarna og ég hef hann líka. Við erum ótrúlega líkir,“ sagði Solskjær að lokum í viðtali við TV2.