Fotbolti.net
25.11.26 - 12:00
Elvar Geir Magnússon

Sterling sleppur við fangelsisvist

Raheem Sterling.

Raheem Sterling.

Canon

Mynd: EPA

Fótboltamaðurinn Raheem Sterling sleppur við fangelsisvist eftir að hafa fengið dóm fyrir glæfraakstur undir áhrifum háturgass. Hann fékk tólf mánaða skilorðsbundinn dóm í morgun.

Hann ók Lamborghini-bifreið sinni á vegrið á hraðbraut í Hampshire í maí. Vitni sáu hann anda að sér blöðru undir stýri á meðan aksturslag hans var hættulegt.

Hluti af dómnum er að hann þarf að sinna 100 klukkustunda samfélagsþjónustu.
Hann játaði sök en fyrrum framlög hans til góðgerðarmála og sú ákvörðun hans að gangast sjálfviljugur undir fíknimeðferð milduðu dóminn.

Sterling, sem verður 32 ára í desember, hefur verið án félags síðan skammtímasamningur hans við Feyenoord rann út í lok síðasta tímabils. Hann lék meðal annars með Chelsea og Manchester City á ferlinum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.