Fotbolti.net
25.11.26 - 11:11
Elvar Geir Magnússon

Stjórarnir tveir reknir frá Lincoln

Stjórarnir tveir reknir frá Lincoln
Canon

Mynd: Lincoln City

Lincoln City er í stjóraleit eftir að Chris Cohen og Tom Shaw voru látnir taka pokann sinn. Mikla athygli vakti á Englandi þegar Lincoln ákvað að fara í tveggja þjálfara kerfið, eitthvað sem tíðkast ekki í enska boltanum.

Þessi tilraun Lincoln heppnaðist ekki og þeir entust í hálft ár sem stjórar félagsins.

Lincoln tapaði 4-0 gegn Charlton í gær og er liðið þremur stigum frá fallsvæðinu í Championship-deildinni. Cohen og Shaw voru aðstoðarmenn Michael Skubala sem stýrði Lincoln upp í B-deildina.

Skubala hætti hjá Lincoln til að taka við Bristol City og kom það á óvart að Cohen og Shaw fengu stöðuhækkun í sameiningu.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough17+1435
2Wolves17+1234
3Stoke City16+732
4Birmingham16+1329
5West Brom16+829
6Southampton17+1628
7QPR17+728
8Swansea17+327
9Sheffield Utd17+626
10Portsmouth17+326
11Norwich17+925
12West Ham17+1324
13Blackburn16-122
14Wrexham17-122
15Charlton Athletic17-720
16Bristol City17-1019
17Cardiff City17-518
18Millwall16-518
19Bolton16-918
20Watford16-1415
21Lincoln City17-1615
22Preston NE17-1312
23Burnley16-911
24Derby County17-2110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.