Fotbolti.net
25.11.26 - 09:15
Elvar Geir Magnússon

Freyr ræddi við fjölmiðla fyrir utan Lerkendal

Freyr hefur gert frábæra hluti með Rosenborg.

Freyr hefur gert frábæra hluti með Rosenborg.

Canon

Mynd: Rosenborg

„Nei, nei, nei! Nú ætlum við að fá okkur morgunmat og svo er æfing á eftir. Ég er alls ekki hættur neinu," sagði Freyr Alexandersson við fréttamann TV2 þegar hann var spurður hvort hann væri hættur sem aðalþjálfari Rosenborg.

Freyr var mættur til starfa á Lerkendal, heimavelli Rosenborg, í morgun og fjölmiðlamenn biðu eftir honum fyrir utan.

Sky Sports og fleiri breskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Freyr hefði fengið tilboð um starfið hjá Swansea. Hann er sagður vera efstur á óskalista Championship-félagsins.

„Við skoðum það seinna í dag," sagði Freyr um þær fréttir. Líkurnar á því að hann verði ráðinn til velska félagsins hafa aukist verulega að undanförnu og viðræður sagðar langt komnar.

Swansea situr í 8. sæti í Championship-deildinni og í baráttu um að komast upp í ensku úrvalsdeildina. Rosenborg mætir Molde næsta laugardag í leik sem verður lykilviðureign í baráttunni um Evrópusæti.
Semja við Rosenborg um greiðslu fyrir Frey
TENGT EFNI

Semja við Rosenborg um greiðslu fyrir Frey




Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough17+1435
2Wolves17+1234
3Stoke City16+732
4Birmingham16+1329
5West Brom16+829
6Southampton17+1628
7QPR17+728
8Swansea17+327
9Sheffield Utd17+626
10Portsmouth17+326
11Norwich17+925
12West Ham17+1324
13Blackburn16-122
14Wrexham17-122
15Charlton Athletic17-720
16Bristol City17-1019
17Cardiff City17-518
18Millwall16-518
19Bolton16-918
20Watford16-1415
21Lincoln City17-1615
22Preston NE17-1312
23Burnley16-911
24Derby County17-2110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.