Fotbolti.net
01.11.26 - 17:00
Brynjar Ingi Erluson

Þýskaland: Ísak lék klukkutíma í jafntefli - Eftirminnilegur dagur hjá El Mala-fjölskyldunni

Ísak Bergmann og Said El Mala á góðri stundu, en eldri bróðir El Mala skoraði í frumraun sinni

Ísak Bergmann og Said El Mala á góðri stundu, en eldri bróðir El Mala skoraði í frumraun sinni

Canon

Mynd: EPA

Union Berlin 1 - 1 Koln
1-0 Janik Haberer ('10 )
1-1 Malek El Mala ('79 )
Ísak Bergmann Jóhannesson var í byrjunarliði Köln sem gerði 1-1 jafntefli við Union Berlín í þýsku deildinni í dag, en þetta reyndist heldur betur eftirminnilegur dagur fyrir El Mala-fjölskylduna.

Skagamaðurinn er orðinn lykilmaður hjá Köln og var því að venju á sínum stað á miðjunni, en hans menn lentu undir snemma leiks þegar Janik Haberer kom Union yfir.

Varnarleikur Köln var heldur slakur í markinu, en leikmenn Union fengu að athafna sig nánast óáreittir við vítateiginn og inni í honum áður en Tim Skarke náði að pota boltanum framhjá markverði Kölnar á Haberer, sem átti auðvelt með að skora í autt markið.

Ísak fór af velli þegar hálftími var eftir, en á 72. mínútu gerði Köln athyglisverða skiptingu þegar hinn 21 árs gamli Malek El Mala kom inn á.

Malek er eldri bróðir Said El Mala, sem hefur verið einn besti leikmaður Kölnar á tímabilinu og vann sér nýlega sæti í þýska landsliðinu. Þetta var hins vegar frumraun Malek með aðalliði Kölnar og átti hann heldur betur eftir að setja mark sitt á leikinn.

Aðeins sjö mínútum eftir innkomuna skoraði hann jöfnunarmarkið. Yngri bróðirinn sendi þá boltann inn í teiginn þar sem Alessio Castro-Montes stýrði honum í átt að fjærstönginni. Þar var Malek mættur á réttum stað og tryggði Köln dýrmætt stig.

Ógleymanleg stund fyrir El Mala-bræðurna og fjölskylduna, en Köln situr í 13. sæti deildarinnar með níu stig eftir leikinn á meðan Union Berlín er í 16. sæti með sjö stig.

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern8+1918
2Dortmund8+818
3Freiburg8+816
4RB Leipzig8+1115
5Werder8+315
6Leverkusen8+213
7Elversberg8013
8Mainz8010
9Augsburg8+39
10Stuttgart8-19
11Hoffenheim8-29
12Paderborn8-39
13Köln8-39
14Hamburger7-109
15Frankfurt7-78
16Union Berlin8-127
17Schalke 048-56
18Gladbach8-114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.