Ármanni Ingi Finnbogason er genginn í raðir Víkings frá ÍA og hefur hann gert fjögurra ára samning við félagið.
Ármann er örvfættur hægri kantmaður sem fæddur er árið 2004 og er uppalinn hjá ÍA. Hann lék á láni hjá Grindavík í Lengjudeildinni síðasta sumar en lék sumarið 2023 í Lengjudeildinni með ÍA og 2024 í Bestu deildinni.
Fótbolti.net ræddi við Kára Árnason, yfirmann fótboltamála Víkings, og spurði hann út í nýjasta liðsmann Víkinga.

„Ég er búinn að fylgjast með þessum strák frá því í fyrra þegar hann var í Grindavík. Hann er með eiginleika sem hentar okkur mjög vel, er mjög áræðinn og tekur menn á úti á kanti. Við höfum aldrei verið með svona vinstri fótar kantmann.
Helgi var notaður hinum megin, á vinstri kantinum. Ármann er allt öðruvísi týpa og er hægri kantmaður, betri að koma inn á völlinn. Við höfum alltaf verið með hægri fótar mann á vinstri kanti sem kemur inn á völlinn og nú erum við komnir með mann í þessa rullu öfugu megin.“
Ármann var sagður ganga í raðir Víkings fyrst í Kjaftæðinu, hlaðvarpi hér á Fótbolti.net, í gærkvöldi. En þá var jafnframt greint frá því að Ármann myndi fara norður og til Þórs á láni fyrir komandi tímabil. Kári var spurður hvort að það væri raunin og hvort að eitthvað væri klárt í þeim efnum.
„Nei, við ætlum að skoða hann núna næstu vikur og sjáum hvar hann stendur. Síðan skoðum við málin bara í rólegheitum,“ sagði Kári.
Athugasemdir