02.03.22 - 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hector Herrera verður liðsfélagi Þorleifs

Í baráttunni við Bruno Fernandes í Meistaradeildinni á dögunum

Mynd: EPA

Miðjumaður Atletico Madrid, Hector Herrera, er að ganga í raðir Houston Dynamo í sumar. Frá þessu greinir fjölmiðlamaðurinn Luis Omar Tapia sem fjallar um mexíkósku deildina.
Herrera er mexíkóskur landsliðsmaður og hefur spilað með Atletico undanfarin ár. Houston Dynamo er í bandarísku MLS-deildinni og hjá félaginu er Þorleifur Úlfarsson.

Herrera er 31 árs og kemur á frjálsri sölu til Houston þegar samningur hans við Atletico rennur út í sumar.
Hann lék sína fyrstu leiki með Pachuca í Mexíkó árið 2010, árið 2013 var hann keyptur til Porto í Portúgal og árið 2019 var hann keyptur til Atletico. Hann varð spænskur meistari með liðinu síðasta vor.
Herrera hefur spilað 96 landsleiki fyrir þjóð sína og hefur skorað tíu mörk. Hann var hluti af liðinu sem varð Ólympóumeistari árið 2012 í London.

Thor að fara fá alvöru liðsfélaga til Houston https://t.co/jDAMoSsXJs
— Guðlaugur Valgeirsson (@GulliValgeirs) March 1, 2022