Fotbolti.net
19.11.26 - 11:02
Elvar Geir Magnússon

Þrír í framboði til forseta FIFA - Vega ekki þar á meðal

 Infantino er talinn sigurstranglegastur fyrir komandi kosningar.

Infantino er talinn sigurstranglegastur fyrir komandi kosningar.

Canon

Mynd: EPA

Alþjóða fótboltasambandið FIFA hefur staðfest þrjá frambjóðendur fyrir forsetakosningarnar sem fara fram í Marokkó 18. mars.

Hinn umdeildi Gianni Infantino býður sig fram til endurkjörs en fær mótframboð frá Philippe Diallo, forseta franska fótboltasambandsins, og Kozo Tashima, heiðursforseta japanska sambandsins.

Ramon Vega, fyrrum varnarmaður Tottenham, hafði gefið það út að hann hyggðist bjóða sig fram en er ekki meðal frambjóðenda. Frestur rann út í gærkvöldi.
Hver er Diallo og getur hann skákað Infantino?
TENGT EFNI

Hver er Diallo og getur hann skákað Infantino?

UEFA staðfesti í vikunni að Philippe Diallo, forseti franska fótboltasambandsins, hefði fengið einróma stuðning framkvæmdastjórnar þess. Efasemdir eru þó um að hann muni geta skákað Infantino og er hann talinn sigurstranglegastur fyrir komandi kosningar.
Philippe Diallo.

Philippe Diallo.

Canon

Mynd: EPA

Kozo Tashima.

Kozo Tashima.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.