Fotbolti.net
19.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fyrrum aðstoðarmaður Klopp tekur við Strasbourg (Staðfest)

Vitor Matos

Vitor Matos

Canon

Mynd: EPA

Vitor Matos er tekinn við franska liðinu Strasbourg en hann kemur frá Swansea.

Sky Sports greinir frá því að Strasbourg greiði Swansea 5 milljónir punda til að fá hann.
Matos er 38 ára gamall Portúgali en hann var í teymi Jurgen Klopp hjá Liverpool á sínum tíma. Þar sá hann um að halda utan um unga leikmenn sem voru að taka sín fyrstu skref með aðalliðinu.

Ashley Williams er sagður vera í viðræðum um að taka við sem bráðabirgðastjóri Swansea en þessi 42 ára gamli Walesverji spilaði með Swansea frá 2008-2016.

Swansea er í 6. sæti Championship deildarinnar og Strasbourg er í 13. sæti frönsku deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.