Fotbolti.net
19.11.26 - 10:12
Kári Snorrason

Snýr aftur til æfinga hjá Liverpool eftir 14 mánaða fjarveru

Efnilegur hafsent.

Efnilegur hafsent.

Canon

Mynd: EPA

Giovanni Leoni hefur snúið aftur til æfinga með aðalliði Liverpool. Hann hefur verið fjarverandi í 14 mánuði vegna krossbandaslita.

Þessi 19 ára varnarmaður gekk í raðir Liverpool frá Parma sumarið 2025 en hann sleit krossband í sínum fyrsta leik fyrir liðið, gegn Southampton í deildarbikarnum.
Meiðsli Leoni flókin og endurkoman frestast
TENGT EFNI

Meiðsli Leoni flókin og endurkoman frestast

Búist var við að hann yrði frá í um 9 mánuði en meiðslin voru flóknari en búist var við í fyrstu og frestaðist endurkoman.

Liverpool Echo greinir nú frá því að Ítalinn sé byrjaður að æfa með aðalliðinu að nýju og er búist við því að hann gæti komið inn í leikmannahópinn í desember.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.