Fotbolti.net
19.11.26 - 10:00
Elvar Geir Magnússon

Þróttur á forsíðu Íslenskrar knattspyrnu

Forsíða bókarinnar í ár.

Forsíða bókarinnar í ár.

Canon

Mynd: Íslensk knattspyrna

Bókaflokkurinn Íslensk knattspyrna skipar veigamikinn sess hjá fjölmörgum íslenskum fótboltaáhugamönnum. Bókin fyrir árið 2026 er farin í prentun og er væntanleg í búðir snemma í desember.
Þróttur prýðir kápuna í fyrsta skipti enda vann félagið sinn fyrsta stóra titil á árinu 2026 þegar kvennalið Þróttar varð bikarmeistari, ásamt því að karlaliðið vann umspilið um sæti í Bestu deildinni.

Það eru því Álfhildur Rósa Kjartansdóttir og Baldur Hannes Stefánsson fyrirliðar Þróttar sem prýða forsíðuna. Á bakinu eru svo Íslandsmeistarar karla og kvenna úr Víkingi og Breiðabliki og bikarmeistar Breiðabliks í karlaflokki.

Þrjú viðtöl eru í bókinni í ár en viðmælendur eru Gylfi Þór Sigurðsson, Agla María Albertsdóttir og Álfhildur Rósa Kjartansdóttir.

„304 blaðsíður, tæplega 450 myndir og Sögur útgáfa er útgefandinn. Innihaldið að öðru leyti? Allt - já ég meina allt sem gerðist í íslenskum fótbolta á árinu 2026! Njótið," skrifar Víðir Sigurðsson á Facebook.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.