Fotbolti.net
02.03.24 - 21:26
Brynjar Ingi Erluson

Lengjubikar kvenna: Þór/KA með stórsigur á Þrótti - Sandra María gerði þrennu

Sandra María Jessen átti stórleik

Sandra María Jessen átti stórleik

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Þór/KA 6 - 2 Þróttur R.
1-0 Bríet Jóhannsdóttir ('8 )
2-0 Bríet Jóhannsdóttir ('15 )
3-0 Sandra María Jessen ('29 )
3-1 Angela Mary Helgadóttir ('49 , Sjálfsmark)
4-1 Margrét Árnadóttir ('57 )
5-1 Sandra María Jessen ('60 )
6-1 Sandra María Jessen ('81 )
6-2 Freyja Karín Þorvarðardóttir ('83 )
Sandra María Jessen gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í 6-2 sigri Þórs/KA á Þrótti í A-deild Lengjubikars kvenna í Boganum í dag.

Hin 17 ára gamla Bríet Jóhannsdóttir skoraði fyrstu tvö mörk heimaliðsins áður en Sandra María, fyrirliði Þórs/KA, bætti við þriðja markinu eftir tæpan hálftíma.

Angela Mary Helgadóttir varð fyrir því óláni að koma boltanum í eigið net í byrjun síðari hálfleiks.

Það hefði engin áhrif á heimakonur sem bættu bara í. Margrét Árnadóttir skoraði fjórða markið áður en Sandra María gerði tvö mörk á rúmum tuttugu mínútum til að fullkomna þrennu sína.

Undir lok leiks skoraði Freyja Karín Þorvarðardóttir fyrir Þróttara.

Þór/KA er með fullt hús stiga á toppnum eftir þrjá leiki í riðli 2 en Þróttur er með eitt stig í næst neðsta sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.