Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Jón Óli léttur: Mannandskotinn kemur úr logninu úr miðbæ Reykjavíkur
Gylfi Tryggva: Ógeðistilfinning efst í kollinum
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
   mán 02. mars 2026 10:13
Snæbjört Pálsdóttir
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Eimskip
Af æfingu um helgina.
Af æfingu um helgina.
Mynd: KSÍ
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska kvennalandsliðið mætir heimsmeisturum Spánar á útivelli í undankeppni HM á morgun. Sveindís Jane Jónsdóttir er lykilmaður í íslenska liðinu og ræddi hún við Fótbolta.net í gær.

„Þetta er mjög spennandi, alltaf gaman að spila svona leiki og á móti svona góðum leikmönnum. Ég held að við séum allar mjög spenntar og klárar í verkefnið. Við vitum að þetta verður mjög erfitt og maður verður líka bara reynslunni ríkari. Það er gaman að máta sig á móti svona góðum leikmönnum," segir Sveindís.

Það má búast við því að spænska liðið verði meira með boltann í leiknum á morgun og íslenska liðið sættir sig við það. Einn helsti styrkleiki Sveindísar er hraðinn sem hún býr yfir og hún er tilbúin að nota hann.

„Við vitum allar að við erum ekki að fara vinna þær í því að halda boltanum og við erum í lagi með það - þær mega halda í boltann. Við viljum nýta þær sóknir sem við fáum og vonandi get ég nýtt hraðan minn, og aðrir leikmenn líka, þannig að við náum að setja inn einhver mörk og vonandi halda hreinu."

„Undirbúningurinn hefur verið nokkuð góðar, búnar með þrjár æfingar og það hefur gengið vel, við höfum farið mjög djúpt yfir varnarleikinn því við vitum að þær eru með frábæra leikmenn í sínu liði. Við vitum að við þurfum að verjast lengi, í 90 mínútur plús. Við höfum líka farið aðeins yfir sóknarleikinn og séð hvar er hægt að sækja á þær. Það er galopið fyrir okkur, þær halda boltanum mjög vel og kannski nenna ekki jafnmikið að verjast - við verðum að nýta okkur það,"
segir Sveindís.

Leikurinn á morgun hefst klukkan 18:00 og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net og beinni útsendingu á RÚV. Spilað verður á Estadio Municipal de Castalia sem er í Castellon de la Plana.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
Slapp
banner
banner