Barcelona vill bæði fá Lautaro Martínez frá Inter og Neymar frá PSG í sumar.
Fjárhagsstaða félagsins er þó í óvissu vegna kórónuveirufaraldursins.
Lautaro, sem er 22 ára, hefur skorað 16 mörk í 30 leikjum fyrir Inter á þessu tímabili og hefur mikið heillað í Meistaradeildinni þar sem hann er með fimm mörk í sex leikjum.
Spánarmeistararnir vilja fá hann til að verða arftaki Luis Suarez sem er á leið niður brekkuna.

Neymar vill fara frá frönsku höfuðborginni og á sér þá ósk að snúa aftur á Nývang.
Brasilíski sóknarmaðurinn er reglulega orðaður við endurkomu til Börsunga en meiðsli hafa haft áhrif á veru hans hjá PSG.
Athugasemdir