Fotbolti.net
02.05.22 - 21:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jón Þór: Hefði viljað fá sigur á afmælisdaginn

Auglýsing
Jón Þór Hauksson.

Jón Þór Hauksson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég hefði viljað fá sigur hérna á afmælisdaginn," sagði Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, eftir jafntefli gegn nýliðum Fram í Bestu deildinni í kvöld.

Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli og eru Skagamenn enn taplausir, með fimm stig eftir þrjá leiki.
„Það var ekki mikið af færum í þessu en mér finnst við komast í fínar stöður, álitlegar stöður sem við hefðum getað gert mikið betur í. Það vantaði herslumuninn, smá ró á síðasta þriðjungi til að gera eitthvað úr þeim stöðum."

„Við mættum mjög öflugum Fram-liði í dag. Þetta voru ekki mörg færi en við hefðum getað gert betur í nokkur skipti."

„Á heildina litið held ég að jafntefli sé sanngjarnt en við erum pínu fúlir að hafa ekki náð að klára þetta... við erum vissulega taplausir og það er ásættanlegt. En auðvitað viljum við gera betur, við viljum alltaf vinna."

Í viðtalinu í spilaranum hér fyrir ofan ræðir Jón Þór um leikmennina sem voru ekki með liðinu í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.