Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
   lau 02. maí 2026 12:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Spænski bikarmeistarinn við pabba sinn: Eins gott að þú vannst Þór
Mynd frá 2023 þegar Orri Steinn spilaði með FCK og mætti Breiðabliki í forkeppni Meistaradeildarinnar. Óskar var þá þjálfari Breiðabliks.
Mynd frá 2023 þegar Orri Steinn spilaði með FCK og mætti Breiðabliki í forkeppni Meistaradeildarinnar. Óskar var þá þjálfari Breiðabliks.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frá vinstri til hægri: Emelía Óskarsdóttir, Laufey Kristjánsdóttir og Óskar Hrafn. Voru þarna mætt til að sjá Orra spila landsleik gegn Kósovó á Spáni í fyrra.
Frá vinstri til hægri: Emelía Óskarsdóttir, Laufey Kristjánsdóttir og Óskar Hrafn. Voru þarna mætt til að sjá Orra spila landsleik gegn Kósovó á Spáni í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson varð í síðasta mánuði bikarmeistari með liði sínu Real Sociedad. Liðið sigraði Atletico Madrid í úrslitaleik og þurfti vítaspyrnukeppni til að knýja fram sigurvegara.

Fjölskylda Orra Steins var mætt á völlinn en faðir hans, Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, komst ekki til Sevilla. Spilað var á Estadio de La Cartuja leikvanginum.

Móðir Orra, Laufey Kristjánsdóttir, og systur hans, Magnea og Emelía voru mættar á Estadio de La Cartuja í Sevilla ásamt kærustu Orra, Sylvíu Rós, og dóttur hans.

Hversu mikla þýðingu er að fá að upplifa það að verða bikarmeistari með fjölskylduna á svæðinu?

„Það eru auðvitað forréttindi að hafa fólk sem styður við mann og er alltaf til staðar. Þau hafa alltaf kastað öllu til hliðar til að koma að styðja mig frá því ég byrjaði í fótbolta, þau eru stór partur af þessu og að geta deilt þessu með þeim skiptir mestu máli. Að sjá dóttur mína í stúkunni var einstakt og að fá að vera með henni á þessari stundu var magnað."

Faðir Orra, Óskar Hrafn Þorvaldsson, komst ekki á leikinn en daginn á undan hafði hann stýrt KR gegn Þór í 2. umferð Bestu deildarinnar. Það leið ekkert alltof langur tími eftir leik áður en Orri heyrði í pabba sínum.

„Ég sagði við hann að það var eins gott að þú vannst Þór fyrst þú ætlaðir ekki að koma," segir Orri og hlær. „Hann var mjög glaður og mjög stoltur, frábær leikur fyrir hann að horfa á í sjónvarpinu," segir Orri. Skemmst er frá því að segja að KR sigraði Þór 5-2 á Meistaravöllum og er KR með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir. Meira úr viðtalinu við spænska konungsbikarmeistarann verður birt á síðunni á næstu dögum.

Óskar Hrafn sagði frá sinni upplifun í viðtali við Vísi á dögunum og er hægt að lesa það hér.


Slapp
banner
banner
banner