Fotbolti.net
02.06.05 - 19:35
Elvar Geir Magnússon

Jon Macken til Crystal Palace (Staðfest)

Jon Macken til Crystal Palace (Staðfest)
Canon
Sóknarmaðurinn Jon Macken er genginn til liðs við Crystal Palace, kaupverð er ekki gefið upp. Macken er 27 ára og var keyptur til City á 5 milljónir punda árið 2002 en hefur ekki staðið undir væntingum. Hann fékk síðan þau skilaboð frá Stuart Pearce að hann væri ekki hluti af hans áætlun fyrir næstu leiktíð.
"Það voru gríðarleg vonbrigði þegar ég fékk þessi skilaboð frá Pearce. En ég lít á björtu hliðarnar og hlakka til að takast á við verkefnin hjá Palace, liðið var óheppið að falla niður um deild og ég vonast til að geta hjálpað því að komast upp aftur." sagði Macken.

Macken hefur ekki verið í vandræðum með að skora í ensku 1.deildinni og spurning er hvort hann muni halda uppteknum hætti með Palace.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.