Aron og Arnór: Foreldrarnir styðja okkur mikið
Auglýsing

Bræðurnir Aron og Arnór með landsliðstreyjurnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðin sýna hvoru öðru stuðning.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Einar með ungum stuðningsmanni á æfingu.

Fótbolti.net ræddi við bræðurna Aron Einar og Arnór Gunnarssyni á Hotel Nordica í dag, en þeir eru báðir að spila landsleiki í vikunni, Aron gegn Eistlandi í fótboltanum og Arnór gegn Portúgal í handboltanum.
KSÍ og HSÍ eru nú í samstarfi til að sýna að liðin veita hvoru öðru stuðning, og mun HSÍ bjóða fótboltamönnunum á handboltalandsleik og fótboltalandsliðið gerir slíkt hið sama fyrir Eistlandsleikinn.

Stoltir af handboltalandsliðinu
,,Við erum náttúrulega kannski ekki í átaki, en vildum sýna hvorum öðrum áhuga. Fólk heldur kannski að það sé mikil samkeppni og að það hlakki í mönnum þegar illa gengur hjá hinu liðinu, en það er alls ekki þannig,\" sagði Aron Einar við Fótbolta.net.
,,Við erum virkilega stoltir af handboltalandsliðinu okkar. Þeir hafa náð gífurlegum árangri og við getum lært ýmislegt af þeim hvað varðar reynslu af því að fara á stórmót og fleira,\"
,,Við vildum bara sýna það að við erum í þessu saman og þetta verða bara skemmtileg verkefni. Við förum á leik hjá þeim og þeir koma svo á leikinn okkar á miðvikudaginn. Við erum bara að sýna hvorum öðrum stuðning.\"
Hafa ætíð sýnt hvor öðrum stuðning
Arnór segir að þeir bræður sýni hvorum öðrum mikinn stuðning og hafa þeir alltaf gert það.
,,Við gerum það endalaust, við höfum bara verið að því síðan við byrjuðum fjögurra eða fimm ára gamlir í fótbolta og handbolta. Við höldum því áfram, það er alveg klárt,\" sagði Arnór við Fótbolta.net.
Aðspurður hvort að hann hafi valið fótboltann fram yfir handboltann vegna ótta við bróður síns svarar Aron því harðneitandi:
,,Neinei, þetta endaði bara á því að ég fékk nokkurn veginn leið á því að vera að keppa í handbolta og fótbolta bæði í einu. Það var bara kominn tími á að velja og akkúrat á þeirri stundu sem ég þurfti að velja hafði ég meiri áhuga á fótbolta á þeim tíma. Ég sé nú ekki mikið eftir því í dag,\"
Foreldrarnir fylgjast vel með
Arnór segist fylgjast með bróður sínum og bendir honum á ef eitthvað má betur fara.
,,Ég hef nú alveg horft á leiki, til dæmis í vetur. Ég hringdi nú einhvern tíma í hann og sagði honum eitthvað sem mér fannst vanta, en það var nú bara smá djók líka. Hann veit nú alveg hvað hann er að gera inni á vellinum held ég,\" segir Arnór og bætir hann því við að foreldrar þeirra séu dugleg að fylgjast með þeim báðum.
,,Þau gera það. Þau horfa náttúrulega mikið á Aron í sjónvarpinu, það er kannski sýnt aðeins meira af þýska boltanum í sjónvarpinu. En þau fylgjast með á netinu líka, þau fylgjast mikið með okkur báðum og styðja okkur mikið.\"
Aron Einar segir að hann hlakki til að bjóða bróður sínum leik og sérstaklega að horfa á hann spila með handboltalandsliðinu.
,,Algjörlega. Það er náttúrulega bara gaman að geta komist á leik hjá honum, ég hef nú ekki komist á marga leiki hjá honum, sérstaklega í Þýskalandi. En ég hef farið á nokkra landsleiki, mér finnst alltaf jafn gaman að fara á handboltaleiki eins og þið vitið. Það verður bara gaman að fara á leik hjá honum og hann fær svo að koma á leik hjá okkur á miðvikudaginn,\" sagði Aron Einar að lokum.