Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   mán 02. júní 2025 16:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Tímasetningin kom Óla Hrannari á óvart - „Stoltið er sært"
Lengjudeildin
Óli Hrannar var þjálfari Leiknis í um það bil eitt ár.
Óli Hrannar var þjálfari Leiknis í um það bil eitt ár.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Hann gerði flotta hluti með liðið í fyrra, tók við í erfiðri stöðu og náði að rétta úr skútunni.
Hann gerði flotta hluti með liðið í fyrra, tók við í erfiðri stöðu og náði að rétta úr skútunni.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Nemanja Pjevic var aðstoðarmaður Óla Hrannars og heldur hann áfram í sínu starfi, allavega enn sem komið er.
Nemanja Pjevic var aðstoðarmaður Óla Hrannars og heldur hann áfram í sínu starfi, allavega enn sem komið er.
Mynd: Elvar Geir Magnússon
Það hefur gengið illa hjá Leikni í byrjun móts.
Það hefur gengið illa hjá Leikni í byrjun móts.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
'Það er kannski ýmislegt sem ég er ósáttur með í aðdragandanum, en það er bara eitthvað sem ég þarf að díla við'
'Það er kannski ýmislegt sem ég er ósáttur með í aðdragandanum, en það er bara eitthvað sem ég þarf að díla við'
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Óli Hrannar Kristjánsson var á föstudagskvöld látinn fara sem þjálfari Leiknis. Sparkið fékk hann eftir annan leikinn í röð sem liðið tapaði með því að fá á sig sex mörk.

Nánast strax eftir leik
Fótbolti.net ræddi við Leiknismanninn í dag.

„Það kom kannski bara á óvart hvað ákvörðunin var tekin fljótt og með litlum fyrirvara. Ætli þetta hafi ekki bara verið um klukkutíma eftir leik, ég var kallaður inn á skrifstofu þar sem stjórnin var og þeir sögðu mér frá sinni ákvörðun," segir Óli Hrannar.

„Ég þarf svo sem ekkert að skilja ákvörðunina, það eru alir með sína sýn á hvernig fótboltinn er og hvernig hann virkar. Að sjálfsögðu hefði ég viljað fá aðeins lengra tækifæri til að snúa þessu, en þeir voru ekki til í það. Því fór sem fór."

Þarf að taka ábyrgð á spilamennsku liðsins
Umtalið um Leikni er að liðið eigi að vera mun betra en það sem það hefur náð að sýna í upphafi móts.

„Það er klárt, það er fullt af hæfileikum innan hópsins, en við náðum bara ekki að ýta vagninum af stað. Ég verð að taka ábyrgð á því þegar liðið spilar ekki eins vel og ég trúi að það geti gert. Maður vissi alveg að þetta yrði niðurstaðan á endanum ef þetta myndi ekki skána. Svo var ákvörðunin bara tekin fyrr en ég bjóst við."

Sástu einhverjar lausnir í kortunum?

„Já já, við vorum að reyna breyta og aðlaga á milli leikja, en það gekk náttúrulega ekki betur en þetta. Maður hafði ekki mikinn tíma eftir þennan leik til að skoða hvað maður hefði viljað bæta fyrir næsta verkefni, en það er þá bara verkefni hjá teyminu sem er núna starfandi að finna bestu leiðina til að snúa genginu við."

Fannst þér skrítið að allir í teyminu myndu ekki stíga til hliðar?

„Nei, alls ekki. Það væri skrítið ef aðstoðarþjálfarinn yrði látinn fara, en ekki aðalþjálfarinn, en svo verður það væntanlega bara ákvörðun hjá nýjum þjálfara hvað hann vill gera."

Aljgört draumastarf
Óli Hrannar er uppalinn hjá Leikni og var á sínum tíma fyrirliði liðsins. Hann tók við liðinu fyrir um ári síðan þegar Vigfús Arnar Jósefsson steig til hliðar. Hvernig var þetta ár sem þjálfari þíns liðs?

„Eins og ég hef sagt áður þá var þetta algjört draumastarf og ótrúlega gaman að fá að þjálfa sitt lið. Maður hafði drauma og væntingar fyrir framtíðinni, en svona er bara lífið í fótboltanum, það er ekkert hægt að reikna með að allt gangi að óskum."

Langar þig að þjálfa áfram í meistaraflokki?

„Ég veit það ekki, ég er búinn að nota helgina til að sleikja sárin og reyna rífa sig upp af rassgatinu, það þýðir ekkert annað. Maður lærði helling af þessu giggi, og hvort sem það verður meistaraflokksþjálfun eða eitthvað annað, það verður bara að koma í ljós. Ég er ekkert að stressa mig á því í dag."

Stoltið er sært
Verandi Leiknismaður, hvernig verður að fylgjast með liðinu það sem eftir er af sumri? Ertu að fara mæta á leiki eða muntu halda þig til hlés?

„Stoltið er sært, þannig ég mun fylgjast með úr fjarska til að byrja með. Svo bara sjáum við hvað tíminn leiðir í ljós."

Ég geri ráð fyrir að stjórnarmenn séu, allavega einhverjir, nokkuð góðir félagar þínir. Gerir það þetta ennþá erfiðara?

„Nei nei, það er bara 'business' hlutinn af þessu, þetta er lítið land og Leiknir lítið félag. Við vissum alltaf að þessi staða gæti komið upp. Það er kannski ýmislegt sem ég er ósáttur með í aðdragandanum, en það er bara eitthvað sem ég þarf að díla við."

Eitthvað sem þú vilt segja varðandi aðdragandann?

„Nei, alls ekki. Eins og ég sagði áðan þá eru menn með ólíka sýn á hlutunum og þessi leið var tekin. Það er bara þannig," segir Óli Hrannar að lokum.
Athugasemdir
banner
banner