Rúnar Kristins: Rosalega ánægjuleg úrslit
Auglýsing

Rúnar Kristinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Kristinsson, stjóri KR, var gríðarlega ánægður með 2-0 sigur Íslandsmeistarana á nýliðum Víkinga í Frostaskjólinu í kvöld.
Eftir afar jafnan fyrri hálfleik
Eftir afar jafnan fyrri hálfleik
,,Já ég er rosalega ánægður. Þetta var erfiður leikur, sérstaklega í fyrri hálfleik. Hann var mjög jafn og Víkingar fengu sennilega hættulegri færi. Mér fannst við vera mun betri aðilinn í síðari hálfleik og kannski mikill heppnisstimpill yfir fyrsta markinu,\" sagði Rúnar.
,,Eftir það stjórnuðum við þessu vel og þeir ógnuðu ekki mikið. Þetta var gríðarlega erfiður leikur og rosalega ánægjuleg úrslit.\"
Rúnar ræddi vel við sína leikmenn í hálfleik og það skilaði sér inn á völlinn.
,, Við fórum yfir stöðuna í rólegheitum og spjölluðum saman um hvað við gætum gert betur, hvað við gætum lagað og strákarnir gerðu það allt frábærlega. Hægt og sígandi náðum við að taka leikinn í okkar hendur og klára þetta.\"
Baldur Sigurðsson var allan leikinn á varamannabekk KR. Rúnar segir hann hafa átt við smávægileg meiðsli að stríða og vonaðist til að hann nái leiknum gegn Breiðablik í Borgunarbikarnum á sunnudaginn.
,,Baldur er tæpur og við tókum enga sénsa með hann. Við byrjuðum með hann á bekknum og ætluðum að sjá til hvort við þyrftum á honum að halda. Sem betur fer gátum við hvílt hann allan leikin í dag og gefið honum þá hvíld sem hann þurfti. Vonandi verður hann klár á sunnudaginn.\"