02.07.16 - 17:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Víglundur: Klárt víti að mínu mati
Auglýsing

Víglundur var sáttur með frammistöðu sinna manna

Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonardóttir

Víglundur Páll Einarsson, þjálfari Fjarðabyggðar, var sáttur með leik sinna manna eftir jafntefli gegn Grindavík í dag.
Grindavík jafnaði eftir vítaspyrnu í uppbótartíma og Víglundur segir að það hafi verið hárrétt hjá dómaranum að dæma víti.

„Heilt yfir er ég sáttur með leikinn, sáttur með frammistöðuna og mér fannst við berjast frábærlega í þessum leik,\" sagði Víglundur.
„Auðvitað er það hundsvekkjandi að fá á sig víti á 92. mínútu. Klárt víti að mínu mati, en mér finnst markmaðurinn eiga að fá aukaspyrnu í aðdragandanum á undan.\"
„Ég ætla samt ekkert að fara að ræða nein einstök atriði hjá dómaranum. Svona er þetta bara í fótboltanum.\"