Fotbolti.net
24.07.26 - 06:00
Kári Snorrason

Liðsfélagi Lúkasar og Ólafs til Villareal

Mun spila með U21 liði Villareal til að byrja með.

Mun spila með U21 liði Villareal til að byrja með.

Canon

Mynd: Villareal

Ganverski framherjinn Wahabu Musa er genginn í raðir spænska félagsins Villareal frá bandaríska háskólaliðinu Clemson.

Hjá Clemson var Musa liðsfélagi Lúkasar Magna Magnasonar og Ólafs Flóka Stephensen.
Skrifar undir samning hjá KR en fer til Bandaríkjanna í júlí
TENGT EFNI

Skrifar undir samning hjá KR en fer til Bandaríkjanna í júlí

Ólafur Flóki hefur leikið tíu leiki með Val í Bestu deildinni í sumar en Lúkas skrifaði undir samning út tímabilið hjá KR. Hann hefur þó ekki komið við sögu í leik með félaginu.

Lúkas var valinn til Real Salt Lake í nýliðavali MLS-deildarinnar síðasta vetur og ætlar hann að taka haustönnina með Clemson og fer til Real Salt Lake eftir áramót.

Báðir hafa þeir verið úti í Clemson á vegum Soccer and Education.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.