Fotbolti.net
24.07.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jói útherji

De Jong spilaði meiddur á HM - Frá næstu mánuðina

De Jong spilaði meiddur á HM - Frá næstu mánuðina
Canon

Mynd: EPA

Frenkie de Jong, miðjumaður Barcelona, verður frá næstu mánuðina vegna meiðsla á hné sem hann varð fyrir með hollenska landsliðinu á HM.

Hann fór í skoðun hjá hollenska teyminu og þeir töldu að það væri í lagi að spila, sem hann gerði. Hann fór hins vegar í skoðun hjá Barcelona sem komst að þeirri niðurstöðu að hann yrði frá í allt að fimm mánuði.
Vangaveltur hafa verið á kreiki um að samband Barcelona og De Jong hafi orðið slæmt vegna þess hvernig miðjumaðurinn og læknateymi Hollands tóku á meiðslunum.

Hann sendi frá sér yfirlýsingu í gær vegna málsins.

„Það er erfitt fyrir mig að sjá fólk efast um samband mitt og skuldbindingu við félagið. Fótbolti er mér allt og ég hef alltaf gefið allt mitt til Barcelona og landsliðsins," skrifaði De Jong.

„Ég mun alltaf gefa allt í þetta fyrir merkið, liðsfélagana og stuðningsmennina."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.