Fotbolti.net
24.07.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ísak Bergmann að fá nýjan liðsfélaga frá PSG

Ísak Bergmann að fá nýjan liðsfélaga frá PSG
Canon

Mynd: EPA

Martin James, markvörður PSG, er á leið til Köln í Þýskalandi. Florian Plettenberg hjá Sky í Þýskalandi greinir frá þessu.

Samkomulag er í höfn og hann mun skrifa undir tveggja ára samning.
James er 18 ára gamall en hann kemur á frjálsri sölu. Hann hefur verið í akademíu PSG frá 2022 en spilaði ekki leik fyrir aðalliðið. Hann á einn leik að baki fyrir U18 landslið Frakka.

Plettenberg greinir frá því að hann fari í læknisskoðun í dag. Hann mun fá tækifæri til að vaxa og dafna hjá þýska félaginu en hann mun taka að sér hlutverk þriðja markvarðar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.