24.07.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Juventus gefst upp á Martínez - Orðað við Vicario og Suzuki

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Aston Villa er ekki á þeim buxunum að selja argentíska markvörðinn Emiliano Martínez í sumar.
Juventus hafði áhuga á honum en Villa hafnaði 6-7 milljón evra tilboði frá ítalska liðinu.

Ítalski fréttamaðurinn Gianluca Di Marzio greinir frá því að Juventus ætli að hætta að eltast við Martínez.
Félagið ætlar að snúa sér að Guglielmo Vicario, markverði Tottenham, og Zion Suzuki, markverði Parma. Félagið hefur verið í viðræðum við Parma en Suzuki er einnig eftirsóttur af félögum í ensku úrvalsdeildinni.