Fotbolti.net
23.07.26 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Taktískur snillingur eða ömurlegur þjálfari?

Tuchel fer yfir málin með sínum mönnum.

Tuchel fer yfir málin með sínum mönnum.

Canon

Mynd: EPA

Leikplan Thomas Tuchel eftir að England komst í 1-0 gegn Argentínu í undanúrslitum HM hefur verið mjög umtalað síðustu daga en mörgum þótti hann heldur of varnarsinnaður.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 19. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast neðst í fréttinni, en boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.
Fótbolti.net fékk fimm þjálfara til að svara spurningum í kringum HM og ein þeirra sneri að leikplani Tuchel.

Magnús Már Einarsson
„Maður hefur oft séð lið verja forskot eftir að þau komast yfir, en þetta var eitthvað allt annað. Þeir tengdu varla sendingu eftir að þeir skoruðu og fengu það svo sannarlega í bakið á endanum.“

„Oft fer enska pressan fram úr sér þegar eitthvað fer úrskeiðis, en ég skil mjög vel gagnrýnina og hitann sem skapaðist í Englandi eftir þennan leik."


Gylfi Tryggvason
„Mér fannst það mjög gott. England hélt Argentínu algjörlega í skefjum fyrstu 60–70 mínúturnar, eða þar til Argentínumenn gerðu skiptingar sem breyttu leiknum."

„Enzo jafnar leikinn með 0,04 xG skoti fyrir utan teig eftir hornspyrnu, skoti sem Pickford á einfaldlega að verja. Ég ætla því ekki að skella skuldinni á þjálfarann."

„Tuchel var kallaður snillingur þegar hann gerði nánast nákvæmlega það sama til að verja forystu gegn Mexíkó, þá reyndar manni færri. Nú gekk það ekki upp."

„Ef Pickford hefði varið þetta 0,04 xG skot á 85. mínútu væri England líklega á leið í úrslitaleikinn. Hvernig væri umræðan þá? Það er stutt á milli í þessu og auðvelt að vera vitur eftir á. Mér finnst gagnrýnin á Tuchel hafa verið bæði óvægin og ósanngjörn."


Óskar Smári Haraldsson
„Þetta var leikplan sem gekk einfaldlega ekki upp. Það var kraftur í Englendingum í upphafi leiks og þeir litu vel út þar til þeir skoruðu."

„Síðan tók ekki við hefðbundin lág blokk heldur nánast „park the bus“. Hefði England unnið 1-0 værum við að tala um Tuchel sem algjöran snilling, en svo varð auðvitað ekki."

„Mörkin sem England fékk á sig voru einfaldlega slök. Markvarslan var slök, færslurnar á leikmönnum voru rangar og á seinna markinu þarf Ezri Konsa einfaldlega að taka ábyrgð."

„Englendingar lögðust alltof aftarlega og gáfu Argentínu tækifæri til að færa leikinn nær marki þeirra. Að mínu mati rétti England Argentínu miðann í úrslitaleikinn."


Sigurður Ragnar Eyjólfsson
„Það gekk vel framan af, en England varð of varnarsinnað í seinni hálfleik fyrir svona stóra knattspyrnuþjóð.“

Halldór Árnason
„Áður en ég fer lengra þá hef ég aldrei verið rosalega mikill Tuchel aðdáandi. Ég ber mikla virðingu fyrir honum og hann er magnaður í mörgu sem hann gerir."

„Mér fannst leikplanið gegn Argentínu gott, enda var England miklu betra liðið á vellinum fyrri hluta leiksins. Ef þú ert að spyrja mig um skiptingarnar eftir að England kemst yfir þá vil ég frekar tala um umræðuna um þær skiptingar yfir höfuð."

„Thomas Tuchel hefur þurft að taka hundruðir eða þúsundir ákvarðana á mótinu, og neglt þær ansi margar. Þegar að England gerði varnarsinnaðar breytingar í 8 liða úrslitum og 16 liða úrslitum sem hjálpuðu liðinu að sigla sigrum í hús fékk Tuchel hrós fyrir að vera taktískur snillingur. En þegar niðurstaðan var tap þá var hann allt í einu ömurlegur þjálfari sem ekkert veit né kann. Sömu aðilar og hrósuðu honum fyrir varnarsinnað upplegg við að loka leikjum fyrr á mótinu eru farnir að kalla eftir starfi hans eftir tapleikinn gegn Argentínu."

„Það er ekkert í heiminum auðveldara en að sitja í sófanum heima hjá sér og hrósa eða gagnrýna þegar leikjum lýkur og þú veist niðurstöðuna. Starf þjálfarans er að sjá fyrir sér allar mögulegar leikmyndir fyrir leik og á meðan leik stendur og taka stórar ákvarðanir. Persónulega hefði ég ekki gert þessar skiptingar, og þær reyndust svo sannarlega afdrifaríkar. En því miður er ekki í boði að finnast frábært að setja Dan Burns inná í stöðunni 2-1 á laugardegi en galið á í stöðunni 1-0 á miðvikudegi."


Fimm þjálfarar svara stóru spurningunum - „Forréttindi sem við eigum að njóta"
TENGT EFNI

Fimm þjálfarar svara stóru spurningunum - „Forréttindi sem við eigum að njóta"

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar.

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur.

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar.

Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Árnason, verðandi þjálfari Vals.

Halldór Árnason, verðandi þjálfari Vals.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari NSÍ í Færeyjum.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari NSÍ í Færeyjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

England tapaði gegn Argentínu í undanúrslitum HM.

England tapaði gegn Argentínu í undanúrslitum HM.

Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel.

Thomas Tuchel.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.