Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 02. júlí 2020 19:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kolbeinn spilaði hálfleik - „Af hverju er Hamren í VIP?"
Kolbeinn Sigþórsson.
Kolbeinn Sigþórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kolbeinn Sigþórsson var í byrjunarliði AIK er liðið tapaði 1-0 fyrir Gautaborg. Kolbeinn var tekinn af velli í hálfleik, en Erik Hamren, landsliðsþjálfari Íslands, var á vellinum.

Hamren var á VIP-svæðinu og velta gárungarnir á Twitter því fyrir sér af hverju Hamren fái að mæta á leikinn á meðan stuðningsmenn þurfi að horfa heima í stofu. Það er leikið fyrir luktum dyrum í Svíþjóð vegna kórónuveirufaraldursins.

Sjá einnig:
Kolbeinn telur að hann hafi fengið kórónaveiruna

AIK er í áttunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með sjö stig eftir fimm leiki.

Aron Jóhannsson var ekki í leikmannahópi Hammarby og Óskar Þór Sverrisson var ekki í leikmannahópi Hacken. Hammarby vann 1-0 sigur á Varbergs og Hacken gerði markalaust jafntefli við Örebro á útivelli.

Theódór Elmar spilaði 70 mínútur
Í Tyrklandi lék Theódór Elmar Bjarnason 70 mínútur fyrir Akhisarspor þegar liðið vann 1-0 útisigur gegn Istanbulspor AS. Sigurmarkið kom á 83. mínútu.

Theódór Elmar og félagar eru í fimmta sæti þegar þrjár umferðir eru eftir. Þeir eru á leið í umspil um sæti í úrvalsdeild eins og staðan er núna.


Athugasemdir
banner
banner
banner